|
Íþróttafélagið Ægir ÁFRAM ÆGIR!!! =) |
|
04.04.2012 17:20Sveitakeppni í boccia lokiðÍslandsmóti í boccia lokið Síðustu helgi tóku þrjú lið frá íþróttafélaginu Ægi þátt í Sveitakeppni í boccia. Eitt liðið var reyndar ekki fullskipað vegna veikinda sem er að sjálfsögðu alltaf svekkjandi, þar sem það lið fær einungis fjóra bolta á móti sex. Við vorum með lið í öllum deildum, það er að segja, í 1. deild, 2. deild og 3. deild. Allir gerðu sitt allra best og fór mótið vel fram. Það er samt alltaf jafn ánægjulegt að fara með einstaklinga á mót á vegum Ægis! :) Framkoma okkar fólks er nánast undantekningarlaust til fyrirmyndar og er það virkilega eitthvað til að gleðjast yfir. Það var einstaklega gaman að sjá nýja liðsfélaga spreyta sig á mótinu og væntanlega ekki oft sem að mæðgin marsera saman inn á vegum félags! Sóley og Stefán löbbuðu inn undir okkar merkjum og var það virkilega ánægjulegt. Guðmundur Ásgeir tók einnig þátt í fyrsta sinn og stóð sig með ágætum miðað við fyrsta mót. Botnin var svo sleginn í þetta allt saman með stórglæsilegri 3ja rétta máltíð uppí Gullhömrum, Grafarholti og kláruðu Ingó veðurguð og Einar í Svörtum fötum kvöldið með dúndrandi stuði!! =) Bestu þakkir fyrir samveruna! Fyrir hönd Ægis, Kristín Ósk Skrifað af Kristín Ósk 28.01.2012 19:06Íþróttamaður ársins hjá ÆgiGuðni Davíð íþróttamaður ársins hjá Ægi!! :) Guðni Davíð Stefánsson er einstaklega flottur íþróttamaður. Hann hefur æft af mikilli eljusemi í gegnum árin og það hefur verið gaman að fá að fylgjast með honum þessi 7 ár sem ég hef starfað fyrir félagið. Guðni Davíð tekur þátt í nánast öllu sem að félagið býður uppá og hefur gaman af. Á síðasta ári komst hann í undanúrslit fyrir noraðn á Hængsmótinu í boccia og stóð sig vel á því móti. Á Íslandsmótinu sem við héldum í október gerði hann sér lítið fyrir og varð í 2. sæti í 3. deildinni. Með þessum sigri tryggði hann sér þátttöku í 2. deildinni á næsta Íslandsmóti í einliðaleik og mun þá keppa meðal þeirra sterkustu í íþróttinni. Á innandeildarmóti í sundi sem að við hjá íþróttafélaginu Ægi fengum að taka þátt í, í samstarfi við sundfélag ÍBV, vann Guðni Davíð 2. sætið. Hann er mikill keppnismaður og er alltaf jafn gaman að sjá hann fagna sigri! :) Eftir einstaklega flott íþróttaár hjá peyjanum þá er það vel við hæfi að skipa hann Íþróttamann ársins, hjá Ægi, íþróttafélagi fatlaðra.
Fyrir hönd Ægis, Kristín Ósk Óskarsdóttir - formaður Ægis Skrifað af Kristín Ósk 12.10.2011 19:14Frábæru Íslandsmóti í boccia lokið!Það er ekki annað hægt en að brosa hringinn eftir einstaklega vel heppnað Íslandsmót í einliðaleik í boccia sem haldið var í Vestmannaeyjum dagana 8. og 9. október! :) Eins og áður hefur komið fram þá erum við hreint og beint orðlaus yfir allri þessari ótrúlegu aðstoð sem okkur barst. Við getum einfaldlega ekki þakkað fólki næginlega vel fyrir að hafa lyft þessu grettistaki með okkur og gert þetta mót að veruleika og hvað þá að gera það jafn flott og það var! ;) Til að nefna einhver nöfn þá viljum við nota tækifærið og telja upp alla þá sem komu að dómgæslunni á mótinu: Sigurður Sveinsson, Magnús Þorsteinsson og Díana Svava dóttir hans, Óskar Jóshúason, Gunnar Már Kristjánsson, Karítas Þórarinsdóttir, Einar Kárason, Hilmar Björnsson, Jón Pétursson, Ægir Gíslason, Hulda Líney Magnúsdóttir, Sigurgeir, Einar Guðnason, Karl Leó Sigurþórsson, Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir, Sigurður Þór Símonarson og Jón Berg sonur hans, Sævar Þórisson, Erna Sævarsdóttir, Dóra Kolbeinsdóttir, Margrét Rós Ingólfsdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Óla Heiða, Katrín Harðardóttir, Ægir Ármannsson, Þóra Sigríður Sigurðardóttir, Ása Hrönn Ásmundsdóttir, Kári Höskuldsson, Snorri Jónsson, Sæmundur Ingvarsson, Magnús Benónýsson og dóttir, Sigurður Ingason, Margrét Rögnvaldsdóttir, Ragna Kristín Jónsdóttir og Bryndís systir hennar, Brynja Bjarnason og synir hennar, Elín Eiríksdóttir, Stefán Friðriksson, Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Regína Kristjánsdóttir. Eftir því sem leið á mótið bættust jafnt og þétt við aðstoðarmenn á vellina og á einum tímapunkti vorum við nánast of mönnuð. KÆRAR ÞAKKIR TIL YKKAR ALLRA!! :) Eins og við var að búast þá var brjálað að gera í sjoppunni hjá okkur! Kristín Gunnarsdóttir, gjaldkeri félagsins sá um að stjórna öllu þar og gekk það allt saman eins og í lygasögu! :) Foreldrar, vinir, ættingar og fleiri velunnarar félagsins sáu til þess að engin varð mjög svangur og var Ingó hjá Heildverslun Kalla Kriss mjög snöggur að hlaupa til ef okkur vantaði eitthvað. Það er ekki annað hægt en taka sérstaklega fram starfsfólkið í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Þau leystu ALLT sem að þeim var rétt og hjálpuðu okkur heilmikið. Jafnframt á Einsi kaldi og hans fólk skilið mikið hrós, enda 3ja rétta máltíðin einstaklega ljúffeng. Og sjaldan hef ég séð jafn skjóta þjónustu eins og skvísurnar í Höllinni sýndu við að bera matinn á borð. Óskar Pétur tók myndir fyrir okkur og munu þær koma inná þessa síðuna, inná facebook síðu Ægis og hjá Íþróttasambandi fatlaðra líka. Höddi hjá H-hljóð sá um að Páll Óskar gæti skilað sínu allra besta og var engin svikin þar! ;) Fyrirtækin sem styrktu okkur við útgáfu mótsbæklingsins eiga svo sannarlega lof skilið og fá strákarnir í Prentsmiðjunni Eyrúnu sérstakar þakkir fyrir einstaklega flotta útgáfu. Einir Einisson leyfði okkur að nota mynd sem hann tók í sumar og var fólk agndofa yfir fegurðinni. Að lokum vill ég þakka öllum keppendum og mótsgestum fyrir að hafa lagt allt þetta ferðalag á sig til að eyða þessari stórbrotnu helgi með okkur. Þrátt fyrir breytt ferðaplön og hinar ýmsu veðrasviptingar þá hætti engin við að koma á mótið og er það aðdáunarvert!! :) Ég er örugglega að gleyma einhverjum... Ef svo er þá kærar þakkir til þín líka! ;) Við hjá Ægi, íþróttafélagi fatlaðra í Vestmannaeyjum þökkum kærlega fyrir okkur!! Skrifað af Kristín Ósk Óskarsdóttir 24.09.2011 23:45DÓMARANÁMSKEIÐ!!Dómaranámskeið hjá Íþróttafélaginu Ægi, íþróttafélagi fatlaðra Við hjá Íþróttafélaginu Ægi munum njóta góðs félagsskaps föstudaginn 30. september. Þá munu þeir Olli og Kalli frá Íþróttafélaginu Öspinni koma til Eyja og vera með dómaranámskeið á vegum Íþróttafélags fatlaðra. Hvetjum við því ALLA, unga sem aldna, sem hafa einhvern áhuga á boccia að skrá sig (Við miðum svona við 16 ára aldurinn en skoðum allt). Nánari staðsetning og tímasetning verða auglýst síðar. Koma svo, áfram ÆGIR!!! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á netföngin bubsy@simnet.is eða thorina.baldursd@simnet.is. Einnig getið þið hringt í Kristínu Ósk í síma: 894-1731.
Með Ægiskveðju, Kristín Ósk Óskarsdóttir Skrifað af Kristín Ósk Óskarsdóttir 21.09.2011 20:15Þjálfararnir okkar á námskeiðiTuttugu þátttakendur á þjálfaranámskeiði í þjálfun barna með fötlun Námskeið var haldið á vegum Íþróttasambands fatlaðra um helgina þar sem megininntak var þjálfun fatlaðra barna og kynning á EIPET SPORT. Ingi Þór Einarsson, formaður sundnefndar ÍF, var umsjónarmaður námskeiðsins og sá um almennan hluta þess sem fram fór á föstudagskvöld og laugardagsmorgun. Almenni hlutinn var fyrir alla þjálfara en eftir hádegi á laugardeginum var sérgreinahluti þar sem þjálfarar skiptust í hópa eftir greinum. Sumir fóru í verklegar æfingar og aðrir voru í umræðuhópum. Þátttakendur á námskeiðinu voru 20 og komu úr mismunandi íþróttagreinum, boccia, bogfimi, frjálsum íþróttum, fimleikum, sundi og skautaíþróttum. Margir þjálfarar sem þarna voru hafa ekki starfað innan raða ÍF en aðrir þjálfa hjá aðildarfélögum ÍF. Námskeiðið tókst mjög vel og allir þátttakendur fengu skjal í lok námskeiðs þar sem staðfest var þátttaka þeirra á fyrsta námskeiðinu sem tengist kynningu á EIPET SPORT á Íslandi. Þar er um að ræða samstarfsverkefni Evrópulanda og Ísland hefur hug á að taka virkan þátt í því samstarfi. Þjálfararnir okkar þær Þórína, Sylvía og Karítas voru okkar fulltrúar! :) Og stóðu sig með stakri prýði. Skrifað af Kristín Ósk 01.09.2011 14:15Æfingar að byrja!!Boccia byrjar aftur í dag! Yngri iðkendur verða á æfingum á fimmtudögum frá kl.17.10-18. Eldri iðkendur verða á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl.17.10-18. Æfingarnar verða í Týsheimilinu. Þórína Baldursdóttir, Sylvía Guðmundsdóttir og Gunnar Karl Haraldsson eru þjálfarar vetursins. Sundið byrjar 7. september Sundið verður samþætt, eldri og yngri iðkendur saman á miðvikudögum kl.1710-18. Karítas Þórarinsdóttir er nýji sundþjálfarinn okkar og bjóðum við hana velkomna.
Flettingar í dag: 24 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 29 Gestir í gær: 11 Samtals flettingar: 24674 Samtals gestir: 9985 Tölur uppfærðar: 23.5.2012 17:28:53 |
Eldra efni Tenglar |